Samfélagsmiðlar

Fjölmiðlavaktin kynnir nú nýja vöktun á samfélagsmiðlum sem er aðgengileg á notendavefnum. Leitarvélin okkar fer reglulega um frumskóga netheima og kannar hvort viðskiptavinir okkar eru einhvers staðar nefndir, fangar, flokkar og skilar niðurstöðum og raðar þeim í samræmi við fjölda lesenda, „like“ og deilingar. Við vöktum öll helstu bloggsvæði, athugasemdakerfi og spjallþræði landsins og veitum því yfirgripsmikla heildarsýn yfir það gríðarlega magn upplýsinga sem daglega verður til á samfélagsmiðlum. 

Umræða í vefheimum getur haft umtalsverð áhrif, bæði jákvæð og neikvæð, og því mikilvægt fyrir alla sem gæta hagsmuna og orðspors fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og einstaklinga að vera vel með á nótunum. Upplýsingar ferðast þar í ómældu magni á gríðarlegum hraða á hverjum degi svo varla er í mannlegu valdi að fylgjast með því öllu. Vöktun samfélagsmiðla er því lykilatriði á mörgum sviðum, ekki síst þar sem svokölluð kunningjaáhrif eru sífellt markverðari vegna þess hversu þéttriðið rafrænt tengslanet einstaklinga er orðið og mikilvægur hluti af daglegu lífi nútímamannsins. 

Fjölmiðlavaktin er afar gagnlegt verkfæri til þess að vakta umræðuna á samfélagsmiðlunum þannig að grípa megi inn í hana ef þörf krefur, leiðrétta misskilning og rangfærslur eða nýta til markaðssóknar og við aðra almannatengslavinnu í víðasta skilningi þess orðs. 

Helstu kostir

Hraði

Upplýsingar ferðast um vefheima með ógnvænlegum hraða og í gífurlegu magni. Fjölmiðlavaktin fangar þær og flokkar.

Kunningjaviðhorf

Þú vilt vita hvað sagt er um fyrirtækið þitt í samfélagsumræðunni þar sem kunningjaviðhorfið getur skipt sköpum.

Gróa á Neti

Ýmis neikvæður orðrómur getur auðveldlega skotið rótum á netinu. Fjölmiðlavaktin gerir þér viðvart svo þú getir haft áhrif á umræðuna.