Lánstraust hf. (LT) býður ítarlegar lánshæfisskýrslur um erlend fyrirtæki úr öllum heimsálfum. Auk þess að vera umboðsaðili fyri D&B á Íslandi er LT í samstarfi við fjölda erlendra fyrirtækja á sviði fjarhags- og markaðsupplýsinga. Skýrslur um erlend fyrirtæki eru svipaðar LT-skýrslum og nýtast vel við t.d. mat á birgjum, nýjum viðskiptavinum, samstarfsaðilum og minnka útlána- og greiðluáhættu. Skýrslur um erlend fyrirtæki þarf að panta hjá LT.
Í flestum tilfellum eru skýrslurnar afgreiddar samdægurs en í sumum tilvikum getur afgreiðsla tekið 2 - 4 daga.
Meðal þeirra upplýsinga sem skýrslurnar innihalda eru:
- Ársreikningar
- Stjórn
- Eigendur
- Lykilstarfsmenn
- Lýsing á starfsemi
- Stofndagur og ár
- Viðskiptabanki
- Upplýsingar um dótturfélög
- Alvarleg vanskil
- Lánshæfimat
Frekari upplýsingar, pantanir og verð fást með því að senda tölvupóst á reports@lt.is. Þegar skýrsla um erlent félag er pöntuð er mikilvægt að tilgreina nafn og fullt heimilisfang þess fyrirtækis sem óskað er upplýsinga um.