07.06.2012 16:44

Hundrað á dag!

Útvegsmenn berjast nú af fullum þunga gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um veiðileyfagjald. Þegar þetta er skrifað stendur yfir baráttufundur á Austurvelli og því ekki úr vegi að kanna fréttafjölda þar sem LÍÚ kemur fyrir.
Og útvegsmönnum virðist verða talsvert ágengt, allavega við það að koma málinu á dagskrá umræðusamfélagsins því síðustu þrjá daga hafa birst yfir 300 fréttir þar sem „LÍÚ“ er nefnt. Það eru hundrað á dag!